Ferill 431. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 452 — 431. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um Alþjóðahafsbotnsstofnunina og námuvinnslu á hafsbotni.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hver er ástæða þess að fulltrúar Íslands hafa ekki sótt fundi Alþjóðahafsbotnsstofnunarinnar, líkt og fram kemur í svari ráðherra við fyrirspurn á 153. löggjafarþingi (1151. mál, þskj. 2169)? Kemur til álita að endurskoða þá afstöðu og taka þátt í starfi stofnunarinnar?
2. Hver er afstaða íslenskra stjórnvalda til hugmynda um tímabundna stöðvun eða varanlegt bann við námuvinnslu á hafsbotni til að vernda vistkerfi og líffræðilega fjölbreytni djúpsjávar?
Skriflegt svar óskast.